Jæja þá er komin tími á eins og
eitt blogg.
Það er mest lítið að frétta hér, ég
er byrjuð í skólanum aftur og það er bara fínt. Ég fór ekki á
Tálknafjörð heldur var ég bara í fjarfundabúnaðinum í skólanum hér,
það var ágætt en ég saknaði nú sttelpnana. Ég fer til þeirra þegar
er ekki mjög vont veður. Ég er í 3 fögum núna, í einu af þeim þarf
ég bara að mæta 2 og eitt verkefni og þá er það búið. Ég fór í þann
tíma fyrst og fer svo aftur 17.feb. og þá er bara að skila
verkefninu.
Þorrablótið hér er 10.feb. og verður
vonandi svaka fjör. Margrét og Ástþór ætla að koma svo erum við
Magga búnar að plata Sigrúnu Helga að koma líka. Það verður geggjað
hjá okkur.
Halldóri gengur vel í skólanum og er
frekar ánægður, það vísu er hann svi þver og þrjóskur að það hálfa
væri nóg. Ein frænka
hans, hún Jenný Óla, segir að þetta sé Vaðalsþrjóskan og held ég að
það sé bara rétt hjá henniJ
Díana stækkar og þroskast voð vel,
hún segir ný orð á hverjum degi. Það nýjasta hjá henni er ojjj og
segir hún það alltaf þegar hún er búin að pissa og kúka og þegar
henni finnst eitthvað ógeðslegt, sérstaklega þegar pabbi hennar
prumparJ
og er hann
ekkert voða sáttur við það.
Hún er alltaf hjá afa sínum þegar
pabbi hennar er að mjólka og sinna á morgnana, því ég er farin að
vinna allan daginn og þeim semur bara rosa vel. Hún fer að kalla á
afa sinn um leið og hún fer á fætur.
Og þá eru það aðal fréttirnar, ég er
búin að borga ferðina út,J
JJ
JJ
JJ
og mig hlakkar
geggjað til. Við fórum út 23. mars og komum heim 27. mars. Þetta
veður bara snilld. Barn- og karlslaus, en ég hugsa að ég eigi nú
eftir að sakan þeirra alveg slatta.
Verð aðeins að minnast á leikinn í
gær, þetta var bara SNILD ég var alveg viss umað þetta væri búið
þegar við topuðum fyrir Úkraníu en nei þeir rústuðu Frakklandi,
þeir eru frábærir.
Svo er bara að horfa á miðvikudag og
þá er Túnis klukkan 16:30 og sá sem vogar sér að reyna að hringja
þá er ekki á ekki von á góðu
En ég hugsa að ég hafi þetta ekki
lengra í bili.
Bæó Fanney.